Velkomin
   Tuðið hennar Öddu Laufeyjar

Veikindin mín

veikindin mín


Ég veikist árið 1994 í okt 16 ára gömul.Ég hafði verið í endajaxla töku sem hafði gengið vel.Nokkrum dögum eftir aðgerð vakna ég einn morguninn með bullandi bjúg og stokkbólginn eins grís í andlit.Ég var samtstundis lögð inn á sjúkrahús fsa á Akureyri, fyrst á kvennadeild, það var haldið að ég væri með vesen í móðurlífi.Fljótlega kom svo í ljós að svo var ekki og þá var ég lögð inn á lyfjadeild 1 á sama spítala.Við tóku langar og strangar rannsóknar, magaspeglun, hjartarannsóknir, blóðprufur 1X á dag stundum oftar, og rannsóknir á allri starfsemi líkamans.Stuttu seinna eftir strangar rannsóknir kom í ljós að eitthvað var að nýrunum.Ég var síðan send á sjúkrahús í reykjavík, þarf var tekið sýni úr nýra til að tékka hvers eðlis sjúkdómurinn var.Kom svo í ljós að ég var haldin langvarandi nýrnabilun sem mundi enda seinna með nýrnaskiptum.Sjúkdómurinn getur einnig lagst á önnur lífæri.Hvítu blóðkornin ráðast á himnuna sem er innan í nýrunum, gera þar sár, sem leka síðan út próteinum,söltum og fleiri hlutum sem líkaminn má ekki við að missa.Þegar sárin gróa verður sá hluti nýrans ónýtur(þetta á við um bæði nýrun í mínu máli).Í dag er ég 28 ára og á 3 yndisleg börn,æðislegan mann og túja prins.Margt hefur gengið á frá því ég greindist, ég hef fengið nokkra blóðtappa, blætt inn á heila(tengt tappa sem fannst í slagæð í höfði.Við það missti ég mikla sjón á öðru auga, en ég lifði þó afog þá skiptir eitt auga engu máli hehe.Ég mun fara í skipti á nýra þegar starfsemi þess er hætt(beggja nýra),það veit enginn hvenær það verður,morgun eftir ár vonandi helst 10 ár, maður verður að vera vongóður hehe.Síðustu mánuði hefur mér farið versnandi, háþrýstings vandamál, vesen með hjarta(hraðsláttur,sleglaflökt)sem læknar kenna nýrunum um.Það er búið að skella á mann ýmsum meðulum til að létta ástandið.Blóðþynning hefur oft leiðinlegar aukaverkannir, mar og blóðnasir og fleira spennandi.Ég er feginn að geta farið í skipti, og ligg ég á bæn að hjartastarfsemi verði nógu sterk hjá mér til að þola þá aðgerð.Því miður læknast ekki alltaf sjúkdómurinn með lífæraskiptum, en hann lengir þó líf mitt.Ég gæti sagt margt fleira en þetta nægir í bili.

Þakka ykkur fyrir að lesa....... Adda Laufey

Flettingar í dag: 2
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 1
Gestir í gær: 1
Samtals flettingar: 18944
Samtals gestir: 8250
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 23:20:07